miðvikudagur, desember 07, 2005
Smá prófsöknuður
Tók mér smá hlé... er komin aftur...
Mig langar alveg rosalega mikið að vera í prófum! Ég öfunda alla þá sem eru í prófum! Ég var næstum löðrunguð með þykku leshefti þegar ég opinberaði þessar tilfinningar mínar í viðkvæmum hópi um daginn...
Að sitja sveittur niðri í Odda með lærdómsfélögum... ahhh.. það var nú indælt í vor, ákaflega kósý og skemmtilegt. Slúður í "sígarettupásum", Laugarar eftir miðnætti, 11-11 og BSÍ ferðir og svo auðvitað hin æsispennandi og úberhressa Mannkynssaga III, hin óviðjafnanlega Opinbera stjórnsýsla, að ógleymdri Íslands- og Norðurlandasögu I... Sakna þess..
En það kemur önn eftir þessa önn og önn eftir hana svo ég bíð bara spennt!